Strategía- aðferðafræði
Til þess að hámarksárangur auglýsingaherferða náist þar
sem viðskiptavinurinn nær settum markmiðum er nauðsynlegt að náið samstarf sé á
milli þeirra aðila sem að henni standa. Því er æskilegt að samvinna
hefjist strax á fyrstu skrefum þegar viðskiptavinur, viðskiptastjóri á
auglýsingastofu, texta og hugmyndafólk, hönnuðir og birtingastjóri sammælast um
strategíu til að vinna eftir. Strategía sem valin er hverju sinni miðast að
öllu leyti við þarfir og stöðu viðskiptavinanna og þeirra markmiða sem sett
hafa verið.
Ráðgjafar á Auglýsingamiðlun leggja sig fram við að upplýsa
viðskiptavini um stöðu þeirra og tækifæri á markaðinum auk þess að hafa umsjón
með að markaðsefni til markhópsins berist á rétta miðla á réttum tíma.