Mörkun (e.branding)

Auglýsingamiðlun hefur tekið þátt í fjölda mörkunarverkefna fyrir bæði stóra og minni viðskiptavini. Mörkun er verkefni sem heldur áfram eftir að upphaflegu verkefni líkur, hvort sem það er frum- eða endurmörkun og vinna aðilar saman við að viðhalda þeirri stefnu sem tekin er í slíkum verkefnum. Með öflugri og skipulagðri mörkun þar sem viðskiptavinurinn, auglýsingastofan og Auglýsingamiðlun koma að er mögulegt að ná umtalsverðum árangri.

Árangurinn getur falist í eftirtöldu:

  • Markhópurinn samsvarar sig við vöruna/ merkið
  • Neytendur velja vöruna frekar en vöru samkeppnisaðilana
  • Neytendur eru oft tilbúnir að greiða meira fyrir vöruna
  • Neytendur eru tilbúnir að leggja meira á sig til að nálgast vöruna
  • Neytendur hvetja aðra til að kaupa / nota vöruna
  • Neytendur eru frekar tilbúnir til að prófa aðrar vörur í sama brandi