Leitarvélar (e.SEM)
Leitarvélar á netinu eru mikilvægt markaðstæki í
dag til að fá hugsanlega kaupendur inná heimasíður fyrirtækja. Tölfræðin segir
okkur að um 85% netnotenda noti leitarvélar til að finna vefsíður og að 75% þeirra sem noti leitarvélar séu með kaup
á vöru og/eða þjónustu í huga er þeir leita.
Með því að kaupa leitarorð á Google, sem er
langvinsælasta leitarvélin í heiminum í dag, má tryggja að þitt fyrirtæki sé
sýnilegt og að mögulegir viðskiptavinir missi ekki af því sem þitt fyrirtæki er
að bjóða uppá. Ef þitt fyrirtæki birtist ekki ofarlega í leitarniðurstöðum er talsverð hætta á að mögulegir viðskiptavinir rati aldrei á þína síðu
þar sem um 84% allra skoða einungis fyrstu síðuna af leitarniðurstöðum.
Fyrir utan hversu áhrifaríkt það er að hafa
fyrirtækið rétt skráð á Google þá er
einn helsti kosturinn við leitarvélakostanir sá að þær eru tiltölulega ódýrar
auk þess sem þær eru einstakar að því leiti að auglýsingin beinist að
einstaklingi sem er að leita sér upplýsinga um vöruna og/eða þjónustuna.
Í
stuttu máli er leitarvélakostun (e. SEM):
- Leitarvélakostun
felur í sér að kaupa auglýsingu á leitarvélum sem birtist er ákveðin leitarorð
eru slegin inn.
- Um 85% netnotenda nota leitarvélar til að
finna vefsíður.
- 84%
netnotenda fara ekki lengra en á síðu 2 á Google við leit að vefsíðum.
- Niðurstöðurnar
birtast ekki með öðrum tenglum heldur á sér stað undir kostaðir tenglar.
- Hægt
að ráða hve mikið er greitt fyrir hvert leitarorð.
ü
Ef
fleiri en einn eru með sama leitarorðið þá ræðst röðunin af því hver greiðir
hæst.
- Engin
takmörk á hve mörg leitarorð er hægt að kaupa.
- Hægt
að skoða mjög ítarlega hvernig auglýsingin er að virka, þ.e. hve margir smella
á auglýsinguna, hvaðan þeir koma, hve margar síðuflettingar o.s.frv.
- Einungis
greitt ef viðkomandi „smellir“ á auglýsinguna.
Starfsfólk Auglýsingamiðlunar aðstoðar viðskiptavini við gerð lista fyrir leitarorð, uppsetningu og eftirfylgni. Frekari upplýsingar veitir Gísli Jóhann Eysteinsson, gisli@am.is