Hvers virði er auglýsing ef markhópurinn sér hana ekki?
Við lítum á birtingar
auglýsinga sem miðju auglýsingaferlisins. Birtingarstjóri kemur að verkefnum
frá byrjun til enda; frá markaðsgreiningu að birtingu auglýsingar.
Auglýsingamiðlun leggur áherslu á sterkt samband birtingastjóra, viðskiptavinar
og auglýsingastofa, sem hámarkar áhrif auglýsinga.
Við erum í góðu
sambandi við alla helstu fjölmiðla landsins og leggjum mikið upp úr því að
þekkja kosti og galla hvers miðils fyrir auglýsandann.
Markmið okkar er að
finna hagstæðustu birtingaleiðina fyrir hvert einstakt verkefni. Ein
birtingaleið hentar einu verkefni, ekki næsta og er það verkefni okkar að finna
bestu leiðina hverju sinni. Hár afsláttur af listaverði fjölmiðils hljómar vel
en hentar ekki alltaf tilteknu verkefni. Fjölmiðillinn verður að samræmast
markmiði birtingar.
Ef markhópurinn er ekki sterkur innan fjölmiðilsins er
góður afsláttur einskis nýtur. Verkefni Auglýsingamiðlunar er m.a. að finna
hagstæðasta snertiverðið og stýra birtingaáætlun rétta leið.
Auglýsingamiðlun
vinnur með helstu markaðsrannsóknarfyrirtækjum landsins og kaupir meðal annars
markaðsgögn frá Capacent Gallup sem er undirstaða allra birtingaverkefna.