
Það eru svo
sannarlega búnir að vera viðburðaríkir og dramatískir dagar á Íslandi síðustu
vikur og eitt er víst að fólk er duglegt að fylgjast með umræðum og fréttum á
netinu. Á
teljari.is má sjá heimsóknartölur
yfir margar af stærstu og mest sóttu heimasíðum landsins og sést aukning
notenda og flettinga í síðustu viku greinilega þegar tölur er bornar saman við
vikurnar á undan. Til dæmis voru rúmlega 520 þúsund notendur sem skoðuðu
forsíðu mbl.is í síðustu viku sem var 38% aukning frá vikunni áður, en þá var
fjöldinn tæp 340þúsund. Visir.is fengu í sömu viku rúmlega 406 þúsund notendur
til sín og var það hvorki meira né minna en 47% aukning frá vikunni áður en þá
voru notendur rúmlega 276 þúsund talsins.
Margir hafa verið
duglegir við að skoða vefmyndavélar af gosinu síðustu daga og sést það
greinilega í mælingunum fyrir síðustu viku.
Míla.is sem setti upp fyrstu vélarnar hefur fengið til sín gríðarlegan
heimsóknarfjölda og trónir efst á listanum þessa vikuna, fyrstu viku þeirra í
mælingum hjá Modernus. Fjöldi notenda
sem fór inná síðu þeirra í síðustu viku var 1.111.625 sem er ótrúlegur
fjöldi. Það vekur athygli að aðeins 4,7%
af þeim notendum eru íslenskir notendur, því ljóst að mikill fjöldi útlendinga
sækir í að bera eldgosið augum á netinu.
Fyrir auglýsendur
er þetta mjög góður tími til að auglýsa, með fjölmiðlanotkun eins mikla og að undanförnu.
Þetta er vissulega sérstakur tími og verður áhugavert að sjá hvort virkni
auglýsinga t.d. smellir og eftirtekt auglýsinga á netinu, innkomur og sala í
verslunum haldist í hendur við aukna fjölmiðlanotkun fólks eða hvort ástandið
hafi þveröfug áhrif.