19.3.2010

AM morgunkaffi - Netið

Síðastliðinn þriðjudag héldum við morgunkaffi í Norræna húsinu þar sem umræðuefnið var netið og möguleikar í notkun þess í markaðsstarfi.  Fjölmargir sýndu þessu fundarefni áhuga og mættu margir viðskiptavinir okkar, samstarfsaðilar á auglýsinga -stofum landsins og fjölmiðlum, nemendur og aðrir utanaðkomandi sem sóttu í frekari þekkingu á viðfangsefninu.

Í upphafi fundar var fjallað um vefborða og mælingar á árangri þeirra, leitarvélar, dreifingu og gerð efnis til notkunar á netinu, vöktun umfjöllunar um fyrirtæki og stöðu samfélagsmiðla í dag.  Því næst tók Sigurður Valur Sigurðsson markaðsstjóri Iceland Express til máls og sýndi gestum nokkur dæmi um notkun þeirra og reynslu í samfélagsmiðlum.  Að lokum tóku Egill Harðar frá socialmedia.is og Kristján Gunnarsson frá Gogoyoko til máls, fjölluðu þeir um notkun sína og reynslu á samfélagsmiðlum eins og Twitter og Facebook og fóru betur ofan í hvaða atriði fyrirtæki þurfa að hafa í huga á slíkum miðlum. 

Á meðan á fundinum stóð voru nokkrir fundargestir duglegir að twitta um það sem fram fór og má finna það helsta  inná #amkaffi. Við þökkum þeim sem mættu og tóku þátt kærlega fyrir komuna, sjáum ykkur í næsta kaffi.




| More