5.2.2010

Dagblaðalestur dregst saman

Nú á dögunum birti Capacent Gallup nýjar niðurstöður úr könnun á dagblaðamarkaðinum á Íslandi sem framkvæmd var á tímabilinu nóvember 2009- janúar 2010.  Lestur hefur ekki verið minni á stóru dagblöðunum tveimur, Fréttablaðinu og Morgunblaðinu frá því að núverandi form mælinga var tekið upp í byrjun árs 2007.  Uppsöfnuð dekkun Fréttablaðsins mælist nú 82,1% yfir vikuna en var 87% á sama tímabili á síðasta ári.  Morgunblaðið hefur í dag uppsafnaða dekkun yfir vikuna 57,8% en hafði 69,9% fyrir ári síðan.

Fréttablaðið er sterkast í aldurshópnum 50-59 ára á meðan Morgunblaðið er sterkast í aldurshópnum 60 ára og eldri.  Fimmtudagsblað Fréttablaðsins er þeirra mest lesna blað vikunnar eins og oft áður.  Laugardagsblað Morgunblaðsins er aftur á móti þeirra sterkasta blað vikunnar og eykst lestur á því frá síðustu könnun þrátt fyrir að heildarlestur blaðsins hafi dregist saman.   Frekari úrvinnslu á þessari könnun má finna á vef Capacent Gallup hér.

| More