26.10.2009

Hræringar á fjölmiðlamarkaði, MBL, Skjárinn og FBL

Morgunblaðið hefur breytt fyrirkomulagi helgarútgáfunnar hjá sér. Frá og með helginni sem leið er sunnudagsblaðið framvegis kallað "SunnudagsMogginn" og dreift til áskrifenda með laugardagsblaðinu. SunnudagsMogginn verður með lífstílstengdar greinar ásamt fréttaskýringum. Matur&vín, kvikmyndir, viðtöl, hönnun, ferðalög og fleira. Skv. Morgunblaðinu er lagt upp með að gera SunnudagsMoggann að eins konar vikuriti sem lesendur munu grípa í yfir vikuna. Stærð blaðsins er aðeins minni en hefðbundin stærð Morgunblaðsins, svipuð og á sérblöðum Morgunblaðsins hér áður fyrr, M-tímarit, Lifun, Tímaritið. Nýtt barnablað "Disneyblaðið" mun fylgja sunnudagsútgáfunni og Lesbókin flyst yfir í SunnudagsMoggann. Það verður spennandi að fylgjast með þessari þróun hjá Morgunblaðinu.

15.nóvember næstkomandi mun Skjár 1 fara í læsta dagskrá eftir 10 ár í opinni dagskrá. Áskriftargjaldið verður 2.200 kr. á mánuði og er stefna Skjásins að söfnun áskrifenda gangi hratt fyrir sig. Ólæst dagskrá verður frá 18:30-20.00.  Í kjölfar breytinganna mun auglýsingahólfum vera endurraðað og verðskrá auglýsinga mun taka mið af fjölda áhorfenda eftir breytingar. Erfitt er að segja til um þróun áhorfs á stöðina sem helst í hendur við fjölda áskrifta. Auglýsingamiðlun mun fylgjast vel með þróuninni og aðlaga birtingaáætlanir að breyttu umhverfi.

Fréttablaðið stefnir að því að ljúka breytingum á dreifingu blaðsins á landsbyggðinni nú í lok mánaðar. Eftir breytingar á blaðið að vera aðgengilegt um allt land en blaðinu hefur ekki verið dreift svo víða áður. Fréttablaðið verður áfram borið frítt í hús á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri en að auki verður blaðinu dreift frítt á helstu þéttbýlisstöðum suðvesturhornsins: á Reykjanesi, Akranesi, í Borgarnesi og Árborg. Breytingar á dreifingunni eru aðallega fólgnar í því að nú er mögulegt fyrir landsmenn sem ekki hafa haft aðgang að blaðinu að kaupa blaðið í lausasölu á kostnaðarverði. Gengið hefur verið frá samningum við N1 um að bjóða viðskiptavinum sínum að kaupa blaðið á kostnaðarverði. Áætlað er að fleiri sölustaðir munu bætast við á næstunni.

| More