
You Are In
Control ráðstefnunni lauk í gær og var yfirskrift hennar
The digital
revolution shakes the creative industries What´s to be Gained, Lost and
Learned? Fjölmargir
fyrirlesarar tóku til máls má þar nefna Paul Bennet frá
IDEO, Oisin Lunny frá
Habbo, Guðjón Már Guðjónsson frá
Hugmyndaráðuneytinu og Dave
Birss frá
Ogilvy London. Fjölbreyttar pallborðsumræður áttu sér stað þar
sem margir tóku þátt og var rætt margt sem tengist dreifingu tónlistar,
markaðssetningu og internetinu.
Paul Bennet ræddi
meðal annars um hvenig það sem áður var kallað neðanjarðar í ýmsum skilningi sé
nú allt komið á yfirborðið og að það hræði hann. Hann talaði einnig um að ýmsir samfélagsmiðlar
eins og Facebook og Twitter séu góðir miðlar svo lengi sem fólk heldur sig við
leikreglur slíkra samfélaga. Það gangi
ekki að fara inn og ætla sér að stunda sölumennsku heldur sé þetta samfélag til
að fá upplýsingar og mynda tengsl. Ítarlegra viðtal má sjá við Bennet hér.
Dave Birss frá
Ogilvy ræddi meðal annars um félagslega markaðsfærslu og hvernig nauðsynlegt sé
að byggja upp tengsl við neytendur. Það
að öskra skilaboð út í loftið í 6 vikur eins og hann orðaði það sé ekki málið í
dag. Hann ræddi um mikilvægi þess að hlusta og læra því það væri auðvelt að
gera stór mistök með því að misskilja markhóp sinn.
Hér má finna twitter síðu Birss.