
Þriðjudaginn 16.mars kl.9.00 ætlum við á Auglýsingamiðlun að
halda morgunverðarfund í Norræna húsinu fyrir viðskiptavini okkar og
aðra sem hafa áhuga. Fjallað verður um allt sem snýr að netinu í
markaðsstarfi fyrirtækja. Meðal annars
verður fjallað um leitarorð, vefborða, CTR hlutfall, samfélagsvefi,
þátttökuviðleitni fyrirtækja og margt fleira, sjá
video.
Sigurður Valur Sigurðsson markaðsstjóri Iceland Express mun segja frá
þeirra reynslu í notkun samfélagsmiðla eins og Facebook og Twitter.
Að lokum verða umræður um þær spurningar sem
vakna upp og munu Kristján Gunnarsson frá Gogoyoko og Egill Harðar frá socialmedia.is
taka þátt og segja frá sinni reynslu og þátttöku á samfélagsmiðlum. Aðgangur er ókeypis fyrir viðskiptavini og
samstarfsaðila Auglýsingamiðlunar, aðrir greiða kr.1500. Nauðsynlegt er að skrá komu sína á net@am.is