Íslenski markaðsdagurinn

Síðastliðinn föstudag var íslenski markaðsdagurinn haldinn á Nordica og var mikið um fróðleik og gleði þennan dag.  Ráðstefna var haldin yfir daginn þar sem Dr. Kevin Lane Keller  fjallaði um markvissa uppbyggingu vörumerkja og tóku nokkrir starfsmenn Auglýsingamiðlunar daginn í að hlusta á Keller, einn aðal höfunda kennslubóka í markaðsfræði í heiminum í dag.

Í lok ráðstefnunnar tók Einar Einarsson frá Capacent til máls og kynnti niðurstöður könnunar sem framkvæmd var meðal markaðsstjóra 22.febrúar-2.mars 2010.  Þar kom meðal annars fram að meirihlutinn telur að sjónvarp sé áhrifamesti fjölmiðillinn eins og áður en aðrir miðlar virðast einnig fá frekari athygli markaðsstjóra eins og útvarp og netið. Fróðlegt var að sjá að í samanburði við Danmörk telur markaðsfólk dagblöðin á Íslandi mun sterkari auglýsingamiðil en hjá frændum okkar og sama gildir um útvarp.  Danir nota netið og umhverfismiðla hins vegar meira heldur en íslenskt markaðsfólk.  Einnig kom áberandi fram að árið 2010 telja flestir að þeir muni nota netið meira en á árinu 2009 eða tæp 70% svara því játandi.  Allar niðurstöður könnunarinnar má finna hér.

Fíton var með talsverða yfirburði þegar markaðsstjórar voru spurðir hvaða stofa þeir töldu að væri helst í fararbroddi á meðal íslenskra auglýsingastofa. Um kvöldið voru lúðrar, verðlaunagripir Ímarks ,afhentir fyrir þær auglýsingar sem þóttu skara fram úr á liðnu ári. Auglýsingar Vodafone, Essasú, hrepptu þar aðalverðlaun kvöldsins, svo óhætt að segja að kátt hafi verið meðal starfsfólks Motown, höfuðstöðvum Fítons, Auglýsingamiðlunar og Miðstrætis. Öll úrslit kvöldsins má finna hér. Takk fyrir flottan dag Ímark!

| More