
Morgunblaðið
hefur breytt fyrirkomulagi helgarútgáfunnar hjá sér. Frá og með helginni sem leið er
sunnudagsblaðið framvegis kallað "SunnudagsMogginn" og dreift til áskrifenda
með laugardagsblaðinu. SunnudagsMogginn verður með lífstílstengdar greinar
ásamt fréttaskýringum. Matur&vín, kvikmyndir, viðtöl, hönnun, ferðalög og
fleira. Skv. Morgunblaðinu er lagt upp með að gera SunnudagsMoggann að eins
konar vikuriti sem lesendur munu grípa í yfir vikuna.
Stærð
blaðsins er aðeins minni en hefðbundin stærð Morgunblaðsins, svipuð og á
sérblöðum Morgunblaðsins hér áður fyrr, M-tímarit, Lifun, Tímaritið. Nýtt
barnablað "Disneyblaðið" mun fylgja sunnudagsútgáfunni og Lesbókin
flyst yfir í SunnudagsMoggann.
Það
verður spennandi að fylgjast með þessari þróun hjá Morgunblaðinu.
15.nóvember
næstkomandi mun Skjár 1 fara í læsta
dagskrá eftir 10 ár í opinni dagskrá. Áskriftargjaldið verður 2.200 kr. á
mánuði og er stefna Skjásins að söfnun áskrifenda gangi hratt fyrir sig. Ólæst
dagskrá verður frá 18:30-20.00.
Í
kjölfar breytinganna mun auglýsingahólfum vera endurraðað og verðskrá
auglýsinga mun taka mið af fjölda áhorfenda eftir breytingar. Erfitt er að
segja til um þróun áhorfs á stöðina sem helst í hendur við fjölda áskrifta.
Auglýsingamiðlun mun fylgjast vel með þróuninni og aðlaga birtingaáætlanir að
breyttu umhverfi.
Fréttablaðið stefnir
að því að ljúka breytingum á dreifingu blaðsins á landsbyggðinni nú í lok
mánaðar. Eftir breytingar á blaðið að vera aðgengilegt um allt land en blaðinu
hefur ekki verið dreift svo víða áður.
Fréttablaðið verður áfram borið
frítt í hús á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri en að auki verður blaðinu dreift
frítt á helstu þéttbýlisstöðum suðvesturhornsins: á Reykjanesi, Akranesi, í
Borgarnesi og Árborg.
Breytingar á dreifingunni eru
aðallega fólgnar í því að nú er mögulegt fyrir landsmenn sem ekki hafa haft
aðgang að blaðinu að kaupa blaðið í lausasölu á kostnaðarverði. Gengið hefur
verið frá samningum við N1 um að bjóða viðskiptavinum sínum að kaupa blaðið á kostnaðarverði.
Áætlað er að fleiri sölustaðir munu bætast við á næstunni.