Twitter ... á ég?

Við heyrum á  mörgum viðskiptavinum okkar að þeir eru forvitnir um Twitter, hugsanlegum möguleikum þess en eru hræddir á sama tíma, þekkja ekki samfélagið og telja það jafnvel vera góð áskrit á tímaeyðslu.   Klassíska sagan er að þetta sé bara bóla sem muni springa innan skamms. Jú vissulega fer einhver tími í að skoða twitterinn, hins vegar eru kostir þess einnig fjölmargir, það margir að það er þess virði að skrá sig inn og kíkja. 

Ef þú hefur áhuga á að fylgjast með hvað er að gerast í ýmsum fræðum þá er twitterinn tvímælalaust gott tæki til að nálgast slíkar upplýsingar hratt og örugglega.  Hvort sem þú vilt vita hvað er að gerast í markaðsfræði, stjórnmálum, íþróttum eða listum, er verið að pósta því nýjasta í þessum skrifuðu orðum.   

Engar auglýsingar er að finna inná Twitter, eða hvað?  Nei, ekki í formi vefborða en Time birti grein nýlega sem segir frá fyrirtækjum  sem sérhæfa sig í  „kostuðum tístum“ (e.sponsored tweets).  Notendur geta farið inná sérstakar síður, skrá sig inn og það verð sem þeir vilja fá til að gera slíkt og fyrirtæki borga notendum til að tísta því á notendasíður síðar.  Frá því í ágúst hafa um 10 þúsund notendur skráð sig í slíkt og um 700 auglýsendur.  Hérna má finna bloggara sem tók þátt í slíku og situr eftir og spyr sig „Am I a sell out?“ Ef þú ert nú þegar inná Twitter, kíktu á tístin okkar. Ef ekki, drífa sig ...

| More