Í dag ríkir mikil gleði í Garðastrætinu því
Fítonliðar hinum megin við götuna eru að gefa út sitt árlega Fítonblað. Þetta
er áttunda árið sem blaðið kemur út og óhætt að segja að blaðið sé hið
glæsilegasta. Síðustu vikur og daga hafa allir lagst á eitt við að þjónusta
viðskiptavini auk þess að vinna að blaðinu í hjáverkum. Hönnuðurnir fengu meðal annars það
verkefni að gera tillögur að auglýsingum um hvaða áhrif ESB aðild hefði á
auglýsingafagið og
komu margar skemmtilegar pælingar
úr því verkefni.
Við á Auglýsingamiðlun lögðum til stutta
umfjöllun um netið og möguleika þess í markaðsstarfi. Sendu Fíton
póst til að nálgast
eintak.
Í tilefni á útgáfunni er starfandi
útvarpsstöð
í dag, þar sem hitað er upp fyrir partý kvöldsins
en þar munu viðskiptavinir og aðrir
velunnarar mæta og tjútta saman. Bara
taumlaus gleði ....