Landsbyggðin hætt að lesa?

Meðallestur bæði Fréttablaðsins og Morgunblaðsins dregst saman í maí-júlí könnun Capacent sem nýlega kom út. Fréttablaðið er með rúmlega 61% meðallestur og Morgunblaðið með rúmlega 39%. Fimmtudagsblað Fréttablaðsins er sterkasta blað vikunnar með 64,9% lestur á landsvísu. Lestur Morgunblaðsins er þó aðeins meiri nú en hann var í könnun á sama tímabili síðasta sumar. Lestur Fréttablaðsins á landsvísu hefur dregist saman um rúmlega 3,5% ef borið er saman við síðasta sumar. Athygli vekur að lestur Fréttablaðsins hefur dregist mikið sama á landsbyggðinni sem skýrist að öllum líkindum af breyttum dreifingaraðferðum.  Þrátt fyrir þennan mikla samdrátt hjá Fréttablaðinu á landsbyggðinni hefur Morgunblaðið ekki verið að bæta við sig og í raun hefur lesturinn verið að dala í sama hlutfalli og almennt á landinu. Það virðist því vera að á landsbyggðinni sé dagblaðalestur almennt að dragast saman. Hjá Fréttablaðinu hefur meðallestur heldur aukist á höfuðborgarsvæðinu á sama tíma og er 73,4% nú í sumar en var rúmum 2% lægri síðasta sumar.



| More