Síðustu daga höfum við hér á Auglýsingamiðlun verið að skoða og kanna
nýjar áhorfstölur á ljósvakamiðlum landsins sem Capacent Gallup hefur
nýlega sett af stað. Þetta er í raun bylting fyrir okkur birtingafólk
þar sem aðferðafræði PPM mælinganna (Portable people meter)
er mun áreiðanlegri en áður auk þess sem tölurnar eru nýjar og ferskar eða frá því í síðustu viku!
Þessar mælingar fara þannig fram að hópur fólks ber svokallað PPM mælitæki á stærð við símaboða á sér frá morgni til kvölds. Tækið nemur hljóðmerki sem hefur verið komið fyrir í útsendingum sjónvarp- og útvarpsstöðva og skráir tímaupplýsingar um hvenær merkið er sent út.
Einn kostur PPM umfram eldri rafrænar mælingar er sá að með PPM fást upplýsingar um útvarpshlustun samhliða sjónvarpsáhorfi. Einnig gefur PPM möguleikann á mælingum á ljósvakanotkun utan heimilis en sá möguleiki hefur ekki verið fyrir hendi hingað til. Ísland er fyrsta landið til að framkvæma rafrænar sjónvarp- og útvarpsmælingar hjá sama hópi þátttakenda sem gefur möguleika á að samtvinna birtingaáætlanir fyrir sjónvarp og útvarp.
Það sem helst stendur uppúr fyrir auglýsendur er að áhorf í auglýsingatíma sjónvarpsstöðvanna virðist halda sér að mestu en ekki minnka eins og oft hefur talið. Mælingar áður fyrr gátu ekki lýst þessu jafn vel og nú. Mælingar á útvarpi sýna að áhorf er mun samfeldara yfir daginn heldur en fyrri mælingar gáfu til kynna. Svona nákvæmar upplýsingar eru gríðarlega mikilvægar við gerð birtingaáætlana.
Þessar fyrstu tölur sýna að RÚV kemur einna best út af sjónvarpsstöðvunum þegar áhorf í hópnum "allir" er skoðað. Capacent tekur saman svonefndan "topplista" fyrir hópinn "allir" vikulega og birtir hann
hér. Hins vegar þegar sértækir markhópar eru skoðaðir þá eru topplistar þeirra talsvert ólíkir milli markhópa.
Landinn virðist vera hrifinn af íslensku sjónvarpsefni en þættir á borð við Gettu betur, Útsvar, Laugardagslögin og Spaugstofan eru þeir þættir sem eru með mesta áhorfið síðustu vikur.
En það er ekki einungis birtingafólk og auglýsendur sem munu nýta sér þessar tölur heldur einnig dagskrástjórar fjölmiðlanna. Í ljósi vel uppfærðra áhorfstalna má búast við að dagskrábreytingar munu eiga sér fyrr stað en við eigum við að venjast ef áhorf á einstaka þætti mælist mjög lélegt eða mjög gott, til dæmis þegar um nýja þætti er um að ræða.
Stöðvarnar eru nú þegar farnar að láta til sín taka og hefur RÚV til dæmis hækkað sekúnduverðið á þeim þáttum sem hafa mælst með mjög gott áhorf síðustu vikur. Að sama skapi má búast við að aðrir þættir og/eða þáttaraðir lækki vegna lægra áhorfs en áður var talið.
Við á Auglýsingamiðlum munum halda áfram að fylgjast með tölunum vikulega í hinni sífelldri leit að besta mögulega birtingaplani fyrir markhópa okkar hverju sinni. Því getum við lofað þér.