Lífstílshóparnir er markhópagreining sem við
höfum notað á síðustu árum, sumir mikið en aðrir minna. Allir sem vinna að
markaðsmálum ættu þó að þekkja þessa hópa. Til grundvallar skiptingu í þessa
hópa eru 155 spurningar í Neyslukönnun Capacent sem framkvæmd hefur verið
síðastliðin 2 ár í netkönnun. Allt til ársins 2007 var könnunin gerð í
dagbókarformi á pappír. Sú aðferð var ekki farin að skila nægjanlegum árangri,
úrtakið var frekar lítið og svarhlutfall lélegt. Því var brugðið á það ráð að
gera þetta að netkönnun og nú erum við að vinna með rúmlega 3.300 svör.
Spurningarnar sem flokka fólk í lífstílshópa
voru lagðar fyrir í Neyslukönnun 2008 fyrir bankahrunið og talið var að
hóparnir hefðu eitthvað riðlast við hrunið. Því var brugðið á það ráð að spyrja
þessara spurninga aftur í desember. Í
þeim niðurstöðum kom í ljós að miklar breytingar höfðu orðið á viðhorfi fólks,
sem er ef til vill eðlilegt miðað við aðstæður í þjóðfélaginu. Þar til nú hefur
verið miðað við að halda lífstílshópunum í fyrirfram ákveðnum stærðum, gráa
hópnum í 10%, bláa og græna hópunum i 25% og fjólubláa og bleika hópunum í 20%.
Nú eftir hrunið má segja að veggirnir á milli
hópana hafi brostið og stærðarhlutföll þar af leiðandi riðlast. Nú er grái
hópurinn, sem er í raun hópur fólks sem ekki er hægt að flokka í neinn af hinum
fjórum hópunum, orðin stærstur.
Fjólublái og blái hóparnir hafa minnkað mest og sá græni minnst frá því
í könnuninni 2007. Því má segja að þeir sem hægt er að flokka í hópa aðhyllist
nú frekar hughyggju/ hugsjónir og síður efnishyggju/praktík en áður. Með sama hætti er hægt að segja að
framtíðarhyggja sé nú sterkari en fortíðarhyggja. Þessar upplýsingar er
eitthvað sem þeir sem eru að markaðsetja vöru og þjónustu ættu að skoða nánar
og nýta sér.
