Sjónvarp um páskana

Fjölbreytt dagskrá er í boði í sjónvarpinu um páskana, íslenskt efni, heimildamyndir, tónlist og kvikmyndir.  Einnig verður nóg um að vera í sportinu, meðal annars golf og fótbolti.  Rúv sýnir heimildarmynd um Hljóma, Hljómar í Liverpool á laugardeginum.  Einnig verður sýnd heimildarmynd um Jóhann Eyfells á skírdag, Einungis fæðing.  Á öðrum í páskum verður mynd Friðriks Þórs, Djöflaeyjan, á dagskrá og á páskadag verður sýnd upptaka frá tónleikum Denyce Graves sem voru á Listahátið 2008.  Auk þessar verða margar kvikmyndir sýndar, eins og Babel, The Bourne Ultimatum og Mary Poppins.

Stöð 2 mun sýna hina gífurlega vinsælu sýningu Ladda, Laddi 6-tugur, á föstudaginn langa.  Á eftir þeim þætti verður myndin Flugdrekahlauparinn sýnd, sem er gerð eftir samnefndri sögu  Khaled Hosseini.  Aðrar kvikmyndir sem Stöð 2 mun sýna eru t.d. Enchanted, Ratatouille og Mission Impossilbe.

Það verður einnig nóg að gera í sportinu, USA Masters hefst á föstudaginn langa á Stöð 2 sport og fram á sunnudag.  Leikir Enska boltans verða svo sýndir á Stöð 2 sport.

Á Skjánum mun hin hefðbunda dagskrá rúlla yfir páskana, Spjallið með Sölva verður á dagskrá á föstudaginn langa og Fyndar fjölskyldumyndir á laugardeginum.  Á skírdag er lokaþáttur Rules of engagement og á páskadag verður lokaþáttur Flaspoint á dagskrá.  All of us og Leverage eru báðir nýjir þættir sem munu taka við af Rules of engagement og Flaspoint.

| More