Enn og aftur skoðuðum við sjónvarpsáhorf hjá
markhópnum allir 18 – 35 ára og 25 – 45 ára, og þess a vikuna tókum við líka
fyrir markhópinn konur 20 – 50 ára.
Íslenskt efni er áberandi núna og hefur
innlendum þáttum fjölgað á topplistunum síðustu 3 vikurnar. Ef við tökum listann frá því fyrir þremur
vikum síðan þá voru fjórir íslenskir þættir á topp 10 listanum hjá 25- 45 ára og hjá 18 – 35
ára, en í síðustu viku þá voru átta íslenskir þættir á listanum hjá 25 – 45 ára
og einnig hjá 18- 35 ára, ekki sömu þættirnir.
Íslensku þættirnir voru níu á topp 10 listanum hjá konum 20 -50 ára.
Nokkrar breytingar hafa orðið á topplistunum,
Söngvakeppnin búin og Gettur Betur komið á lista og Spaugstofan í efsta sæti á
öllum listunum. Auddi og Sveppi bæta við
sig áhorfi á Stöð 2 og Idol Stjörnuleit og Réttur eru áfram vinsælustu
þættirnir á Stöð 2. Skjár 1 byrjaði með
nýja íslenska þætti í síðustu viku og fengu Fyndnar fjölskyldumyndir fínt
áhorf, áhugavert er að sjá að endursýningin á sunnudegi fær meira áhorf en
frumsýningin á laugardeginum. Top Gear
heldur áfram að gera góða hluti á sunnudagskvöldum á Skjá 1.