Í síðustu viku var fyrsti þáttur Idol -
Stjörnuleitar á Stöð 2 og úrslit í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Þegar
skoðað er sjónvarpsáhorf meðal 18–35 ára og 25–45 ára kemur í ljós að tveir
efstu dagskrárliðirnir á topp 10 listunum eru Söngvakeppni Sjónvarpsins og
Spaugstofan líkt og í síðustu vikunni sem við settum hér inn, sem var vika 5.
Top Gear, sem sýndur er á sunnudagskvöldum
á Skjá 1, er vinsælasti þáttur þeirrar stöðvar í þessum hópum. Á sama tíma er þátturinn í þriðja sæti á top 10 lista
þessa vikuna hjá báðum hópunum.
Áhorf jókst á
lögfræðidramað Réttur á Stöð 2 í báðum hópum. Þátturinn er orðinn enn vinsælli
hjá 25 – 45 ára og komst inná top 10 listann hjá 18 – 35 ára.
Idol-Stjörnuleitin var í fimmta sæti hjá báðum hópum og verður áhugavert að
fylgjast með hvernig áhorfið þróast á næstu vikum.
Þessa vikuna skoðuðum við líka markhópinn 30 – 60
ára. Söngvakeppnin og Spaugstofan voru áfram í fyrstu tveimur sætunum, en
Útsvar tók sér þriðja sætið. Meira er af fréttatengdu efni inná á topp 10
listunum hjá þessum hópi fólks, þar sem
fréttir, veður og Kastljós hjá RÚV voru á top 10 listanum, sem og fréttir
Stöðvar 2.
Nánari áhorfstölur má finna
hér.