Nú er ár liðið
síðan fyrstu gögn komu úr rafrænum ljósvakamælingum (PPM mælingar) Capacent og
við hófum að setja birtingaáætlanir upp í Infosys forritinu sem hýsir PPM
gögnin.
Það var bylting að
fá nýjar tölur vikulega. Nú eru áætlaðar dekkunar- og tíðni tölur uppfærðar
vikulega meðan plön eru enn í gangi og því
möguleiki að uppfæra birtingaplön ef þörf er. Nýir dagskrárliðir fá
mælingu strax og eru því ekki óþekktar stærðir í gegnum heila seríu eins og
gerðist stundum í dagbókamælingum.
Þetta var ekki
einungis bylting fyrir birtingastofur heldur einnig fyrir dagskrástjóra
fjölmiðlanna sem geta nú aðlagað dagskrár út frá upplýsingum mælinganna.
Nýjustu tölurnar eru frá vikunni 26.febrúar til 1.mars og skoðuðum við tvo
hópa, 18 – 35 ára og 25 – 45 ára sem eru algengir markhópar fyrirtækja.
Efstu þrír
þættirnir voru eins hjá báðum hópum, þar kom RÚV inn með Söngvakeppnina og
Spaugstofuna. Hrúturinn Hreinn kom svo í þriðja sæti, þessi þáttur er sýndur á
meðan kosningu stendur í söngvakeppninni og sýnir að fólk er ekki að skipta
mikið á milli stöðva fyrir seinni hluta söngvakeppninnar. Einnig er
spurningaþátturinn Útsvar að gera góða hluti og kemst á topp 10 hjá báðum
hópum.
Á Stöð 2 er
íslenska lögfræðidramað Réttur að koma vel út, sem og nýji þáttur Audda og
Sveppa. Sjálfstætt fólk, American idol
og Cold Case eru þættir sem komast allir á topp 10. Ísland í dag og fréttir á
Stöð 2 hafa verið að lækka sig lítilega miðað við vikurnar tvær á undan en Ísland
í dag þó minna og var með meira áhorf en fréttir í báðum hópum.
CSI og CSI Miami
koma sterkastir inn á Skjá 1, sem og Dexter og One Tree Hill. Bílaþátturinn Top
Gear byrjaði aftur í janúar og er sem fyrr að gera góða hluti, sá þáttur hefur
verið að ná góðu áhorfi hjá mjög víðum hópi fyrir bílaþátt, til dæmis hjá konum
20 – 50 ára nær þátturinn 23,3% rtg á frumsýningu í síðustu viku.
Búast má við að
íslenskir dagskrárliðir verði áberandi í febrúar þegar Idol Stjörnuleitin hefst
á Stöð 2, framlag Íslands í Evrovision þetta árið verður valið á RÚV og Skjár 1
er að byrja með íslenska útgáfu af Fyndnum Fjölskyldumyndum.
Gettu Betur kemur
aftur á dagskrá RÚV og verður nú á laugardögum, í staðin fyrir föstudag líkt og
fyrri ár.
Auddi og Sveppi og
Réttur halda áfram á Stöð 2.
Káta Maskínan er
komin yfir á Skjá 1 af RÚV og Umræðan, nýr þáttur í stjórn Sölva Tryggvasonar
og Gunnhildar Gunnarsdóttir, hefst í febrúar. Í Umræðunni verða hin ýmsu
málefni tekin fyrir. Einnig mun Sölvi stjórna spjallþætti sem verður á dagskrá
á laugardagskvöldum.
Ítarlegri
áhorfsgreiningu fyrir viku 5 er að finna
hér.