Samdráttur í Super Bowl

Um helgina mun eiga sér stað einn stærsti auglýsingaviðburður ársins í Bandaríkjunum, sjálf Super Bowl keppnin í amerískum fótbolta.  Keppnin dregur um 100 milljón manns að skjánum, eða um þriðjung þjóðarinnar og er enginn annar atburður sem kemst nálægt keppninni í áhorfi.  Auk þess hafa rannsóknir sýnt að margir horfa á leikinn gagngert til að sjá auglýsingarnar, sérstaklega konur.  

Það fer ekki á milli mála að auglýsing í leiknum er gott markaðstækifæri, sérstaklega fyrir þá sem vilja ná til stóran hluta Bandaríkjamanna.  Árið 2008 var verðið $2,7 milljón fyrir 30 sekúndu auglýsingu og síðustu ár hafa auglýsendur staðið í röðum til að komast þarna að.  Nú hefur efnahagsástandið í heiminum komið við þennan auglýsingamiðil eins og marga aðra því nú nokkrum dögum fyrir þennan stóra atburð er enn hægt að kaupa auglýsingapláss í útsendingu frá leiknum.  

Þetta hik margra auglýsenda er talið vera ákveðnar viðvörunarbjöllur fyrir það sem koma skal í þessum bransa.  Leikurinn hefur verið talinn mjög góður vettvangur til að kynna nýja vöru á markaði, góð dekkun næst með þessari einu birtingu, sem verðið endurspeglar klárlega, og því góður staður til að byggja upp vitund fólks á nýrri vörutegund.    Sérfræðingar telja að það liggi nokkrar ástæður að baki þess að auglýsendur sækjast ekki í þessi pláss þetta árið.  Ein ástæða getur verið að fyrirtæki séu ekki með jafn mikið um nýjar vörur á markaði og áður.  Önnur er sú að flestir séu að hugsa markaðsstarf til skamms tíma, og þá sé þetta pláss ekki það heppilegasta.  Einnig má telja ástæðu að stjórnendur telji það ekki í takt við ástandið á markaðinum að fjárfesta í jafn dýru auglýsingaplássi og þetta er.  Á sama tíma og fyrirtæki eru að skera niður alls kyns kostnað og fjárfestingar, segja upp fólki og slíkt þá sé það mjög taktlaust að kaupa dýrasta auglýsingapláss á markaðinum.  Það sérstaka einmitt við plássið er að stór hluti almennings þekkir verð plássins, þrátt fyrir að hafa litla verðhugmynd um önnur auglýsingapláss í öðrum tegunda miðla.  Að lokum má gera ráð fyrir að auglýsendur taki ekki þá áhættu að birta auglýsingar sínar á jafn stóru og þekktu plássi, því skapast hefur sú hefð að allar auglýsingarnar eru gagnrýndar af fjöldamörgum, og því getur það verið dýrkeypt að birta auglýsingu sem fellur ekki í kramið hjá fjöldanum.   

Hver svo sem ástæða minnkandi eftirspurnar á þessu auglýsingaplássi er þá er ljóst að þetta gefur svolítið til kynna hvers konar breytingar eru að eiga sér stað.  Það á jú ekki einungis við í Bandaríkjunum, heldur einnig hér á Íslandi og víðar.  Hins vegar þurfa öll markaðssvæði nýjar hugmyndir og aðrar nýjungar til að auka eftirspurn neytenda.  Því er nauðsynlegt að stjórnendur hugsi til langs tíma fremur en skamms tíma til að stuðla að áframhaldandi viðskiptum á markaðssvæði sínu.

Heimild:  Forbes.com

| More