Á síðustu vikum hefur mikið verið spáð og spekúlerað með fjölmiðla
landsins og hefur ríkt nokkur óvissa um framtíð margra þeirra. Ekki hafa þó neinar
stórkostlegar breytingar átt sér stað eftir að 24 stundir var tekið af
dagblaðamarkaði og Skjár 1 ákvað að halda áfram útsendingum sínum.
Fréttablaðið boðaði þó smá breytingar í dag, en helgarútgáfa þess
mun taka breytingum frá og með næstu helgi.
Hér
eftir mun Fréttablaðið einunigs koma út á laugardögum um helgar og fækkar því
blöðunum um eitt yfir vikuna. Laugardagsútgáfan mun taka nokkrum breytingum en
stefnan er tekin á veglegt helgarblað. Helgarblaðið mun meðal annars innihalda
atvinnublað, Heimili og hönnun ásamt mánaðarlegum sérblöðum Fréttablaðsins sem
hafa hingað til fylgt sunnudagsblöðunum. Sérblöðin fjalla meðal annars um
menningu, ferðalög, mat og fjölskylduna.
Morgunblaðið er nú eina dagblaðið sem gefur út
blað á sunnudögum.
Vikulega tímaritið
Dagskrá vikunnar hefur hætt útgáfu sinni.