
Út er komið “hvað
er í gangi” dagatal Auglýsingamiðlunar fyrir árið 2009 og munu viðskiptavinir
og samstarfsaðilar okkar fá það til sín innan skamms. Í þessu dagatali höfum
við tekið saman helstu atburði hvers mánaðar fyrir sig, atburði sem auglýsendur
notast oft við í markaðsefni sínu yfir árið. Atburðirnir eru allt frá því að
vera þjóðlegir, skemmtilegir, árlegir, ómerkilegir, nýstárlegir og eða bara
mjög augljósir. Hins vegar allt atburðir sem að markaðsfólk ættu að vera
með á hreinu til að fylgja tíðarandum hverju sinni. Dagatalið í heild sinni má sjá
hér.
Í janúarmánuði er
til dæmis bóndadagurinn sem er jú vissulega mismerkilegur atburður hjá
(hús)bændum landsins en þá hefst einnig þorrinn. Í febrúar er svo komið
að bollu- , sprengi- og öskudeginum, auk þess sem að gerð skattskýrslunnar
á hverju heimili er orðinn órjúfanlegur hluti þessa mánaðar. Í mars getur
fólk hins vegar slakað á, vorið á næsta leyti, skellt sér á tónleika, til dæmis
á Blúshátíð Reykavíkur eða á Músiktilraunir.