Gogoyoko

Innan skamms opnar ný vefverslun með tónlist á netinu, Gogoyoko, og eru það íslenskir aðilar sem standa að versluninni.  Vefnum er ætlað að gerbreyta hvernig tónlist er seld á netinu og áhersla lögð á að notendur, kaupendur og seljendur geti byggt upp gott tengslanet á auðveldan og þægilegan hátt.  Þarna bætist við nýr og ferskur auglýsingamöguleiki fyrir auglýsendur um allan heim og þar með talin íslensk fyrirtæki.  Nýjungin felst ekki einungis í nýjum vef heldur ekki síst í þeim markaðsupplýsingum sem að auglýsendur fá við kaupin, upplýsingar um virkni auglýsinga  þeirra.

Það er sérstök áhersla lögð á góðgerðarstarfsemi og er fólk hvatt til að gefa hluta af sölunni til góðgerðamála. Tónlistarfólk og útgáfufyrirtæki munu þarna eiga auðvelt með að selja tónlistina beint til kaupenda, milliliðalaust.  Vefurinn á því að veita notendum góðar upplýsingar varðandi tónleika og atburði, það nýjasta á markaðinum, búa til og deila lagalistum, allt eftir persónulega áhuga hvers og eins á tónlist. Í síðustu var sett af stað Alpha útgáfu af vefverslunni og er enn verið að prufukeyra hana. Ætlunin er að í byrjun næsta árs opni vefverslunin fyrir almenning.

Vefurinn er athyglisverður fyrir auglýsendur en vefurinn verður rekinn nær eingöngu á auglýsingatekjum og er fyrirkomulagið svipað og Facebook notar.  Auglýsendur geta þannig náð til ákveðins skilgreinds markhóps út frá ýmsum breytum. Ekki aðeins út frá lýðfræðilegum breytum, kyni, aldri o.s.f.v. heldur einnig út frá því hvernig hver notandi setur upp sína eigin notendasíðu (profile).  Þetta gæti ekki einungis verið gott fyrir auglýsendur sem vilja ná til tónlistaráhugafólks, heldur einnig útlendinga sem hafa áhuga á íslenskri tónlist og sem henni tengist.

Það er fagnaðarefni að nýjar íslenskar hugmyndir verða að veruleika. Það er einnig fagnaðarefni fyrir íslenska auglýsendur að aðgengi þeirra að markaðsupplýsingum við auglýsingar á netinu sé að aukast.  Við hér á AM hlökkum til að sjá vefinn koma í loftið.

Hérna má finna video upplýsingar um Gogoyoko og heimasíðu þeirra hér.


| More