Markaðsflopp hjá Dr Pepper

Eins og við skrifuðum um hér áður þá gaf aðstoðar markaðsstjóri Dr Pepper bandaríkjamönnum loforð í mars síðastliðnum að ef hljómsveitin Guns ´N Roses myndi gefa út plötuna ‘Chinese Democrazy’ árið 2008 myndi fyrirtækið gefa öllum bandaríkjamönnum eina dós af drykknum Dr Pepper.  Þegar þeir tilkynntu þetta óraði þeim líklega ekki fyrir að þeir myndu þurfa að efna loforðið því platan er búin að vera nokkur ár á leiðinni á markað.   Í síðustu viku kom platan hins vegar út og var komið að því að standa við loforðið. 

Bandaríkjamenn þurftu að fara inná heimasíðu fyrirtækisins, skrá sig þar til að fá fría dós. Óhætt er að segja að allt hafi farið á versta veg, heimasíðan lagðist niður, frestur til að ná í miðana var framlengdur, símalínur opnaðar en það dugði ekki til svo ekki fengu allir frían drykk eins og fyrirtækið hafði lofað. Þegar upp var staðið voru mikil vonbrigði hjá mörgum neytendum og ekki síst hjá hljómsveitinni sem telur að Dr Pepper hafi eyðilagt útgáfudag nýjustu plötu þeirra. Hljómsveitin vill meina að fyrirtækið hafi í leyfisleysi notfært sér frægð þeirra og krefjast greiðslu af hendi Dr Pepper vegna þess.

Fyrirtækið segist hafa gert það sem þeir gátu en að eftirspurnin hafi verið þeim ofviða.  Þetta telst algert markaðsklúður af hálfu Dr Pepper og má segja að sumir hafi lært sína lexíu gagnvart neytendum sínum. 

| More