Vodafone og Magnús Geir verðlaunuð af ÍMARK

Við óskum viðskiptavinum okkar, Vodafone og Magnúsi Geir Þórðarsyni leikhússtjóra Borgarleikhússins, innilega til hamingju með þá viðurkenningu sem þeim hlotnaðist úr hendi ÍMARK síðastliðinn fimmtudag. Vodafone var eitt af þremur fyrirtækjum sem tilnefnt var sem markaðsfyrirtæki ársins 2008 og Magnús Geir var valinn markaðsmaður ársins fyrir starf sitt hjá Borgarleikhúsinu og Leikfélagi Akureyrar á árinu.

Það er ánægjulegt að  sjá þessa viðskiptavini okkar verðlaunaða enda hafa þeir lagt mikla vinnu í sitt markaðsstarf. Í starfinu er meðal annars markvisst stuðst við rannsóknir og greiningar á markhópum áður en lagt er af stað í gerð auglýsingaefnis og birtingáætlanna sem er síðan notað sem mælikvarði á árangur og grunn að frekara markaðsstarfi.

Við erum stolt af því að hafa tekið þátt í þessari vinnu og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.
Finna má myndir frá verðlaunaafhendingunni á heimasíðu Ímarks hér

| More