Óhætt er að segja að fyrirtæki beiti mismunandi aðferðum við að koma vörum sínum á framfæri. Í mars á þessu ári tilkynnti Tony Jacobs, aðstoðarmarkaðsstjóri Dr Pepper gosdrykkjanna í Bandaríkjunum, að allir Bandaríkjamenn fengju eina dós af Dr Pepper ef hljómsveitinni Guns ‘N Roses’ tækist að gefa út plötuna ‘Chinese Democrazy’ á þessu ári. Skemmst er frá því að segja að nú er búið að ákveða útgáfudag plötunnar, en hún mun koma út 23. nóvember eftir að hafa verið 17 ár í vinnslu.
Tony Jacobs viðurkennir í viðtali að hann hafi aldrei átt von á að þurfa að efna loforðið enda hafi hann haft litla trú á að platan kæmi út á þessu ári.
Frá og með 23.nóvember geta Bandaríkjamenn farið inná heimasíðu Dr Pepper, skráð upplýsingar um sig og fengið sendan heim frímiða fyrir einni Dr Pepper dós sem þeir geta svo nálgast á næsta sölustað.
Þess má til gamans geta að Bandaríkjamenn eru um 305 milljónir talsins og því um gífurlegt magn dósa að ræða þótt einungis lítið hlutfall þjóðarinnar nýti sér þessa gjöf. Er hér um að ræða frábæra markaðssetningu eða herfileg markaðsafglöp hjá Tony Jacobs? Dæmi hver fyrir sig.