Fjölmiðlanotkun síðustu viku var um margt mjög óvenjuleg og er það að sjálfsögðu vegna óvenjulegra aðsæðna í þjóðfélaginu um þessar mundir. Fólk sótti í stöðugar fréttir og því jukust heimsóknir á fréttasíður á netinu, áhorf á sjónvarp jókst bæði dags og kvölds auk þess sem aukning var í útvarpshlustun.
Á netinu gerðist það helst að fréttasíðan www.mbl.is tók fyrsta sætið yfir fjölda stakra notenda yfir vikuna og náði tæplega 380 þús notendum. Það er aukning upp á 13,7 % miðað við vikuna áður og 24,2% í aukningu í flettingum. Aðsókn inná www.visir.is jókst einnig um 12,2% frá fyrri viku og aukning í flettingum upp um 18,3%. Vanalega er það tölvuleikurinn Eve online, www.eve-online.com, leikur CCP sem fær flesta staka notendur per viku og vermir hæsta sæti lista yfir mest sóttu heimasíður hýstar á Íslandi. Flestir notendur þeirra koma hins vegar erlendis frá.
Heimasíða fréttastofu Ríkisútvarpsins, www.ruv.is, fékk einnig töluverða aukningu í heimsóknum, eða samtals 128.478 staka notendur sem er 43% aukning frá vikunni áður. Aukning í flettingum var einnig mest þar eða um 70% sem er ótrúleg aukning. Því miður fyrir auglýsendur er ekki hægt að kaupa auglýsingar á þessum miðli.
Gríðarleg aukning varð einnig inn á vef tímaritsins Grapevine, www.grapevine.is, eða næstum 200% frá fyrri viku. Flettingar jukust einnig um 140%. Innlent hlutfall heimsókna á þennan vef var þó einungis rúm 10% og því má ætla að margir erlendir aðilar hafi verið að leita sér frekari upplýsingar um Ísland á þessum tímum.
Það er greinilegt að margir fylgdust með ávarpi forsætisráðherra og blaðamannafundum sem var sjónvarpað í beinni útsendingu á RÚV og Stöð 2 í síðustu viku. Uppsafnað áhorf var mun meira en meðaláhorf sem gefur til kynna að færri horfðu á dagskrárliðina í heild sinni, en fleiri horfu á hluta af útsendingunni. Á RÚV var meðaláhorf á ávarp forsetisráðherra í hópnum 30-60 ára 19,8%, en uppsafnað áhorf 55,2% . Heldur fleiri horfðu á útsendingu RÚV. Með aðra dagskráliði þá er gaman að geta þess að íslenskir þættir voru aðra vikuna í röð áhorfsmestu dagskrárliðirnir í sjónvarpi yfir heildina. Svartir englar, Gott kvöld og Spaugstofan eru áhorfsmestu þættirnir í flestum markhópum.
Töluverð aukning varð einnig í útvarpshlustun í síðustu viku og þá helst á þeim tímum þegar blaðamannafundir voru útvarpaðir í beinni útsendingu.
Í miðri þessari umróta viku var svo tilkynnt að föstudagurinn 10. október yrði síðasti útgáfudagur fríblaðsins 24-stunda og því enn einungis eitt fríblað eftir á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Það verður fróðlegt að sjá hvaða breytingar þetta mun hafa áhrif á dagblaðamarkaðinn á næstunni.