Það má með sanni segja að haustið sé komið hjá sjónvarpsstöðvum landsins og
áhorfendum þess, því á síðustu dögum hafa nýjir og þó nokkrir íslenskir þættir
verið settir á dagskrá og landinn virðist hafa aukið áhorf sitt sem aldrei
fyrr. Á meðan að vikir dagar yfir
sumartímann hafa oft verið betri sjónvarpsdagar heldur en helgarnar þegar áhorf
er skoðað þá má segja að því sé öfugt farið þegar veturinn tekur við.
Síðastliðið föstudagskvöld hóf Skjár 1 sýningar á nýjum söngþætti, Singing
Bee sem fékk talsvert áhorf hjá mörgum hópum.
Til dæmis voru konur á aldrinum
18-30 ára mjög hrifnar af þættinum en um 47% þeirra sáu þáttinn það kvöldið
og þar er ekki talið með endursýningarnar næstu daga á eftir en þær fengu
einnig gott áhorf. Um 38% karla í sama
aldursflokki sáu þáttinn einnig og sama áhorf eða 38% fólks í aldurshópnum 30-50
ára. Þrátt fyrir þetta góða áhorf hjá
Skjánum þetta kvöldið sáu talsvert margir söfnunina Mænan er ráðgáta á Stöð 2,
um 28% í hópnum 30-50 ára og aðeins lægra hlutfall í yngri aldurshópum. Útsvarið á RÚV náði talsverðu áhorfi einnig
þrátt fyrir að vera ekki alveg í sínum hæstu hæðum frá síðastliðnum vetri. Um 19% í aldurshópnum 18-30 ára sáu þáttinn
og 25% í aldurshópnum 30-50 ára.
Það var þó ekki síður sunnudagskvöldið sem hélt fólki við viðtækin en RÚV
frumsýndi nýja íslenska seríu Svarta engla rétt áður en að þáttaröðin Dagvaktin
hófst á Stöð 2. Englarnir svörtu náðu
rúmu 55% áhorfi í markhópnum 30-50 ára, 39% hjá körlum á aldrinum 18-30 ára og
44% hjá konum á sama aldri. Ekki náðu
eins margir að sjá Dagvaktina en rúm 40% í hópnum 30-50 ára, 28% karla á
aldrinum 18-30 ára og rúm 31% kvenna í sama aldurshópi.