Við hjá AM fylgjumst gjarnan með vísitölu auglýsingamarkaðar frá einum mánuði til annars. Þarna er fyrst og fremst verið að fylgjast með auglýsingamagni, en ekki fjárhagslegu umfangi. Ástæða þess að við fylgjumst með þessu er m.a. sú að kanna í hvaða átt markaðurinn stefnir, ekki síst í því skyni að upplýsa viðskiptavini okkur um breytingar sem eru að verða á þessu sviði. Nánari greiningar á einstökum auglýsingaflokkum eru fáanlegar hjá okkur fyrir viðskiptavini okkar. Á meðfylgjandi myndum sést hvernig dagblaðamarkaður er greinilega á niðurleið nú síðustu vikur, enda þótt bæði febrúar og apríl á þessu ári hafi verið ögn fyrir ofan vísitölu sama mánaðar í fyrra. Margar ástæður geta legið að baki þessum breytingum og er nærtækast að benda á að sumir bankar hafa mjög haldið að sér höndum hvað blaðabirtingar varðar undanfarið og svo á einnig við um fáeina aðra stóra auglýsendur undanfarið. Þetta leiðir til þess að vísitalan lækkar aðeins í heild.
Á hinn boginn sést hvernig sjónvarpsbirtingar eru að aukast frá því í fyrra hvað umfang varðar. Þá er athyglisvert hve vel vísitala það sem af er þessu ári fylgir fast vísitölu ársins 2007 fyrir sömu mánuði. Það er að sjálfsögðu margt sem getur haft áhrif á umfang birtinga í sjónvarpi og má í því sambandi benda á að ef um sérstaka viðburði s.s. eins og EM er að ræða eða ,,lengri” Eurovision keppni en stundum áður, getur það aukið verulega umfang auglýsingabirtinga í sjónvarpi. Í ljósi þess að í fyrra var kosið til Alþingis, en þá tekur auglýsingamarkaðurinn gjarnan kipp upp á við, má segja að umfang sjónvarpsbirtinga komi að sumu leyti á óvart, svona í ljósi meints samdráttar sem virðist þá fyrst og fremst eiga sér stað í dagblöðu