Samkvæmt nýrri fjölmiðlakönnun Capacent Gallup, sem framkvæmd var á
tímabilinu 1. jan til 30. apríl, mælast
24 Stundir með 50,4% meðallestur á tölublað og hækka sig um 4,6% frá síðustu
könnun. Þetta er í fyrsta sinn sem 24 Stundir mælast með meira en helmings
meðallestur og er greinilegt að blaðið er í mikilli sókn um þessar mundir.
Fréttablaðið bætir við sig 3,1% frá síðustu könnun og er enn víðlesnasta
dagblað landsins, með 64,9% meðallestur á tölublað. Morgunblaðið rekur svo
lestina með 41,6% meðallestur.
Í sömu könnun voru netmiðlar skoðaðir. Þar kemur fram að mbl.is er enn
langvinsælasti netmiðillinn á Íslandi, en alls heimsækja 76,6% landsmanna
síðuna vikulega. Í öðru sæti, líkt og í síðustu könnun, er vísir.is með 56,1%.