
SONY fyrirtækið hefur hafið herferð sem má segja að hafi strax vakið
mikla athygli erlendis. Eftir að hafa birt sk."teasers"-
stríðnisauglýsingar í nokkrar vikur og komið nokkrum myndböndum inn á
YouTube er aðal auglýsingin komin í loftið. Hér er á ferðinni
Froðuborgin, e. Foam City, og er auglýsingin algjört augnakonfekt.
Leikstjóri auglýsingarinnar er Simon Ratigan og var hún tekin upp í Miami í Bandaríkjunum. Auglýsingastofan Fallon London sá um gerð hennar og Warren Ellis gerði tónlistina.
Hér má sjá auglýsinguna á YouTube og
hér má sjá myndir frá því þegar auglýsingin var gerð. Þetta er þó ekki fyrsta auglýsing SONY þessar tegundar en fyrir nokkrum árum kom þessi
hér út á þeirra vegum.