Lipstick Jungle "Shopisodes"

Skjár einn hefur sýningar á nýjum sjónvarpsþætti miðvikudaginn 2.apríl sem nefnist Lipstick Jungle og hefur fengið talsverða athygli í Bandaríkjunum síðan þeir voru teknir til sýninga.  Þátturinn er byggður á metsölubók eftir Candace Bushnell höfund Sex and the City og fjallar um valdamiklar vinkonur í New York

NBC sjónvarpsstöðin hefur nú boðið áhorfendum þáttanna að versla úr fataskápum kvennanna með því að fara inn á heimasíðu þeirra og versla fötin og fylgihluti sem leikkonurnar klæðast í þáttunum.  Með þessu má segja að stöðin sé að bregaðst við þeirri þróun sem hefur verið í gangi varðandi aukna ásókn fólks í að sækja sér efni á netið. Um leið og við leiðum hugann að því hvort þetta sé ný og hugsanlega framtíðar tekjuleið fyrir ljósvakamiðla er gaman að hugsa til þess að við getum hugsanlga fjárfest í nýstraujuðu  buxunum hans Hinriks í Mannaveiðum, jakkafötunum hans Arnars Gauta í Innlit/útlit eða jafnvel peysunum hans Loga Bergmanns innan skamms!


Smellið hér og sjáið hvernig þetta virkar.



| More