Nýr starfsmaður

Fyrir fáeinum dögum hóf Gísli Jóhann Eysteinsson störf hjá okkur á Auglýsingamiðlun. Þetta er enn einn liðurinn í því að bæta þjónustuna okkar, en hann mun fyrst og fremst fást við rannsóknir og greiningar úr heimi markaðs- og auglýsingamála. Ásmundur er sem fyrr rannsóknastjóri okkar og mun áfram sinna því hlutverki.

Gísli mun sinna rannsóknum og úrvinnslu úr Auglýsingamarkaði Capacent, ásamt sérvinnslu úr neyslukönnunum (t.d. NLG frá Capacent) og gagnabönkum MindShare.

Okkur á AM finnst afar gott að hafa fengið þennan góða liðsauka og höfum miklar væntingar til hans. Þá er þetta klárlega og ekki síst fengur fyrir okkar ágætu viðskiptavini, sem nú geta búist við því að fá aukna þjónustu á rannsókna- og greiningasviði. Gísli, sem útskrifaðist sem viðskiptafræðingur fyrir nokkrum árum frá Háskólanum á Bifröst hefur m.a. starfað hjá Landsbankanum, hjá Kvosum, ásamt því að hafa starfað við eigin atvinnurekstur.

Við bjóðum Gísla hjartanlega velkominn í hópinn.

| More