Green Porno með Isabellu Rossellini

Ítalska leikonan Isabella Rossellini er að hefja ansi áhugavert verkefni þessa dagana.  Hún hefur leikstýrt seríu af 8 stuttmyndum um fjölgun skordýra sem eru ætlaðar til skoðunar og sýningar í farsímum og í tölvum.  Þessar einna mínútu stuttmyndir eru kallaðar Green Porno og mun helsta ástæða fyrir nafngiftinni vera sú að nafnið eitt mun ná inn talsverðrum innlitum og athygli í gegnum leitarvélar internetsins. 

Myndirnar voru unnar í samstarfi með Sundance Channel og má búst við að mögulegt verði að nálgast myndirnar þegar nær dregur vori.  Fyrstu þrjá myndirnar voru þó sýndar á kvikmyndarhátíðnni í Berlín um daginn og sagði Rossallini sjálf að hún sæi enn betur hvað það væri erfitt að koma miklu efni fyrir á eins stuttum tíma og raun var.  Shapiro meðleikstjóri hennar lét þesssi orð falla í framhaldi:  "It's very hard to tell a story in a short amount of time. Advertisers get paid millions of dollars to do something like that."

Þessi nálgun Isabellu og félaga er að mörgu leyti mjög áhugaverð.  Farsímar, iPhone, 3G og öll sú tækni sem fylgir farsímum í dag er stöðugt að taka breytingum, tölvupóstur fólks er að verða jafn algengilegur fólki eins og sms smáskilaboð eru í dag svo því verður forvitnilegt að fylgjast með hvernig video klippur og kvikmyndir munu þróast enn frekar á næstunni. Ætli YouTube verði síða sem maður notar mest í gegnum símann sinn í framtíðinni?


Heimasíða verkefnisins er hér.


Heimild:  weird.com

 



| More