Komdu í kaffi- Morgunkaffi um netið og markaðsmál.

Þriðjudaginn 16.mars kl.9.00 ætlum við á Auglýsingamiðlun að halda morgunverðarfund í Norræna húsinu fyrir viðskiptavini okkar og aðra sem hafa áhuga. Fjallað verður um allt sem snýr að netinu í markaðsstarfi fyrirtækja.  Meðal annars verður fjallað um leitarorð, vefborða, CTR hlutfall, samfélagsvefi, þátttökuviðleitni fyrirtækja og margt fleira, sjá video.

Íslenski markaðsdagurinn

 Síðastliðinn föstudag var íslenski markaðsdagurinn haldin á Nordica og var mikið um fróðleik og gleði þennan dag.  Ráðstefna var haldin yfir daginn þar sem Dr. Kevin Lane Keller  fjallaði um markvissa uppbyggingu vörumerkja og tóku nokkrir  starfsmenn Auglýsingamiðlunar daginn í að hlusta á Keller, einn aðal höfund kennslubóka í markaðsfræði í heiminum í dag.

Fréttablaðið minnkar

Í dag kom Fréttablaðið út í breyttri stærð heldur en verið hefur hingað til. Hæð blaðsins hefur minnkað um tvo sentimetra. Hæð blaðsins hefur verið 42 sm en er nú  40 sm eftir breytingu. Breidd blaðsins breyttist  hinsvegar ekki. Heilsíðu auglýsingar ásamt ýmsu föstu auglýsinga- plássi mun taka breytingum með nýrri stærð og hafa flest allir hönnuðir samstarfsstofa okkar verið látnir vita.

Dagblaðalestur dregst saman

Nú á dögunum birti Capacent Gallup nýjar niðurstöður úr könnun á dagblaðamarkaðinum á Íslandi sem framkvæmd var á tímabilinu nóvember 2009- janúar 2010.  Lestur hefur ekki verið minni á stóru dagblöðunum tveimur, Fréttablaðinu og Morgunblaðinu frá því að núverandi form mælinga var tekið upp í byrjun árs 2007. Uppsöfnuð dekkun Fréttablaðsins mælist nú 82,1% yfir vikuna en var 87% á sama tímabili á síðasta ári. Morgunblaðið hefur í dag uppsafnaða dekkun yfir vikuna 57,8% en hafði 69,9% fyrir ári síðan.

Kemur fyrirtækið þitt upp í leitarvélunum á netinu?

Leitarvélar eru að verða sífellt mikilvægara markaðstæki og því nauðsynlegt að fyrirtæki tryggi eins vel og kostur er að að fyrirtækið komi fram  í leitarniðurstöður hjá notendum.  Tölfræðin segir okkur að um 85% netnotenda noti leitarvélar til að finna vefsíður og að  75% þeirra sem noti leitarvélar séu með kaup á vöru og/eða þjónustu í huga er þeir leita. Ef þitt fyrirtæki birtist t.d. ekki ofarlega í leitarniðurstöðum á Google er talsverð hætta á að mögulegir viðskiptavinir rati aldrei á þína síðu þar sem um 84% allra skoða einungis fyrstu síðuna af leitarniðurstöðum. Kíktu hér til að fá frekari upplýsingar. 

AM 2009

Is it true? -  Söng Jóhanna Guðrún í Moskvu þetta árið, aðeins nokkrum mánuðum eftir að fréttir bárust heimsbyggðinni og okkur saklausu Íslendingunum að landið væri komið á hliðina í mörgum skilningi. Fjármál einstaklinga og fyrirtækja tóku stakkaskiptum á stuttum tíma, breyttar áherslur í viðskiptum litu dagsins ljós og ákvarðanir í markaðsmálum og auglýsingagerð tóku breytingum.  Það má því segja að árið 2009 hafi að mörgu leyti farið í leit lausna hjá okkur, samstarfsaðilum og viðskiptavinum, nýrra lausna í breyttu landslagi í markaðsmálum- ágætis áskorun þar.

Notendur Facebook tala meira um vörur og þjónustu en aðrir hvort sem um ræðir umræðu á netinu eða ekki skv. nýrri bandarískri könnun

Fyrirtæki eru í auknu mæli farin að nýta sér samfélagsvefi til að ná betri tengslum við markhópa sína. The Keller Fay Group fylgist árlega með um 350.000 markaðstengdri umræðu með TalkTrack mælingum fyrirtækisins hvort sem um ræðir online umræður eða ekki. Partur af ferlinu eru regluleg viðtöl við panel sem samanstendur af 36.000 manns en nýverið hefur fyrirtækið nýtt sér þessa leið til að meta hlutverk Facebook í vörumerkjauppbyggingu.

Hræringar á fjölmiðlamarkaði, MBL, Skjárinn og FBL

Morgunblaðið hefur breytt fyrirkomulagi helgarútgáfunnar hjá sér. Frá og með helginni sem leið er sunnudagsblaðið framvegis kallað "SunnudagsMogginn" og dreift til áskrifenda með laugardagsblaðinu. SunnudagsMogginn verður með lífstílstengdar greinar ásamt fréttaskýringum. Matur&vín, kvikmyndir, viðtöl, hönnun, ferðalög og fleira. Skv. Morgunblaðinu er lagt upp með að gera SunnudagsMoggann að eins konar vikuriti sem lesendur munu grípa í yfir vikuna. Stærð blaðsins er aðeins minni en hefðbundin stærð Morgunblaðsins, svipuð og á sérblöðum Morgunblaðsins hér áður fyrr, M-tímarit, Lifun, Tímaritið. Nýtt barnablað "Disneyblaðið" mun fylgja sunnudagsútgáfunni og Lesbókin flyst yfir í SunnudagsMoggann. Það verður spennandi að fylgjast með þessari þróun hjá Morgunblaðinu.

Twitter ... á ég?

Við heyrum á  mörgum viðskiptavinum okkar að þeir eru forvitnir um Twitter, hugsanlegum möguleikum þess en eru hræddir á sama tíma, þekkja ekki samfélagið og telja það jafnvel vera góð áskrit á tímaeyðslu.   Klassíska sagan er að þetta sé bara bóla sem muni springa innan skamms.  Jú vissulega fer einhver tími í að skoða twitterinn, hins vegar eru kostir þess einnig fjölmargir, það margir að það er þess virði að skrá sig inn og kíkja. 

Fítonblaðið kemur út í dag!

Í dag ríkir mikil gleði í Garðastrætinu því Fítonliðar hinum megin við götuna eru að gefa út sitt árlega Fítonblað.  Þetta er áttunda árið sem blaðið kemur út og óhætt að segja að blaðið sé hið glæsilegasta.  Síðustu vikur og daga hafa allir lagst á eitt við að þjónusta viðskiptavini auk þess að vinna að blaðinu í hjáverkum. Hönnuðurnir fengu meðal annars það verkefni að gera tillögur að auglýsingum um hvaða áhrif ESB aðild hefði á auglýsingafagið og komu margar skemmtilegar pælingar úr því verkefni. Við á Auglýsingamiðlun lögðum til stutta umfjöllun um netið og möguleika þess í markaðsstarfi. 

"You are in control"

You Are In Control ráðstefnunni lauk í gær og var yfirskrift hennar The digital revolution shakes the creative industries What´s to be Gained, Lost and Learned?  Fjölmargir fyrirlesarar tóku til máls má þar nefna Paul Bennet frá IDEO, Oisin Lunny frá Habbo, Guðjón Már Guðjónsson frá Hugmyndaráðuneytinu og  Dave Birss frá Ogilvy London. Fjölbreyttar pallborðsumræður áttu sér stað þar sem margir tóku þátt og var rætt margt sem tengist dreifingu tónlistar, markaðssetningu og internetinu.     

Farmiðlar framtíðarinnar

Hvernig verða samskipti manna árið 2020?  "To go" dagblöð úr plasti úti á götum, öll bankaviðskipti (mobile payment) manna komin í símann, offline og online heimar orðinn einn og sami heimurinn?  Digital natives, instant translation og mobile agenda eru hugtök sem eru farin að sjást og heyrast sífellt meira.  Áhugavert myndband sem skyggnist aðeins inní framtíðina, The future of mobile media and communication.

Landsbyggðin hætt að lesa?

Meðallestur bæði Fréttablaðsins og Morgunblaðsins dregst saman í maí-júlí könnun Capacent sem nýlega kom út. Fréttablaðið er með rúmlega 61% meðallestur og Morgunblaðið með rúmlega 39%. Fimmtudagsblað Fréttablaðsins er sterkasta blað vikunnar með 64,9% lestur á landsvísu. Lestur Morgunblaðsins er þó aðeins meiri nú en hann var í könnun á sama tímabili síðasta sumar. Lestur Fréttablaðsins á landsvísu hefur dregist saman um rúmlega 3,5% ef borið er saman við síðasta sumar.

Hver eru markmið vefborðans?

Auglýsingar á netinu er alltaf að fá meira vægi en áður í markaðsefni fyrirtækja.  Síðasta könnun ÍMARK meðal markaðsstjóra gaf það meðal annars til kynna að flestir gerðu ráð fyrir að eyða meira í markaðssetningu á netinu árið 2009 heldur en áður.  Það hentar mörgum vörumerkjum að auglýsa á netinu, þó er miðillinn mis mikilvægur eftir því hvaða vara og/eða þjónusta er í boði.  Markmið með vefborða geta verið mismunandi en flestir vilja þó fá notendur til að smella á auglýsinguna og skoða heimasíðu fyrirtækisins.

Twitter nauðsynlegur hluti af ...

Bandaríska raftækjaverslunin Best Buy setti á dögunum fram nýstárlegar kröfur fyrir umsækjendur um markaðsstarf hjá fyrirtækinu. Umsækjendur þurftu nefnilega, auk starfsreynslu og menntunar, að hafa minnst 250 fylgjendur á samskiptasíðunni Twitter en þess hefur ekki verið óskað áður í starfsumsókn  svo vitað sé. Forstjóri fyrirtækisins,  Brian Dunn, er mikill aðdáandi Twitters en sjálfur hefur hann um 1.700 fylgjendur.  Nýverið  hvatti hann  viðskiptavini og fjárfesta í fyrirtækinu, sem ekki gátu mætt á ársfund, til að fylgjast með framvindu hans á Twitter. Ekki fylgir sögunni hve margir fylgdust með ársfundinum á Twitter en búið er að ráða í starfið sem auglýst var til umsóknar.

"The best job in the world"

Markaðssetning á samfélagsvefjum (e. social media) er fyrirbæri sem alltaf er að aukast, á sama tíma og aukning er meðal fjölda fólks sem tekur þátt í slíkum samfélögum.  Nýlega gerði ferðamálaráð Ástralíu skemmtilega tilraun sem lið í því að auka ferðamannastraum til landsins.  Sett var af stað samkeppni “The best job in the world” þar sem leitað var eftir bloggara sem fær fjölda heimsókna daglega og honum boðið til landsins.   

Fyrirmyndarfyrirtæki 2009

Nýlega veitti VR verðlaunin “Fyrirtæki ársins árið 2009”.  Við hér á Auglýsingamiðlun hlutum verðlaun annað árið í röð og erum í 9.sæti í flokki minni fyrirtækja. Valið fór þannig fram að að spurningalisti var lagður fyrir starfsmenn fyrirtækja þar sem þeir voru inntir eftir mati á innra starfsumhverfi fyrirtækis síns. Mælingin náði til átta mismunandi þátta í starfsumhverfi fyrirtækja. Við erum stolt af þessari viðurkenningu okkar, stolt af því að vera fyrirmyndarfyrirtæki árið 2009.

Góður kosningaárangur

Síðustu vikur hafa ekki einungis verið erilsamar hjá stjórnmálamönnum landsins heldur einnig starfsfólki Auglýsingamiðlunar sem hefur staðið í kosningabaráttu með viðskiptavinum sínum, Vinstri grænum og Samfylkingunni.  Unnið var stíft á tveimur stöðum með kosningateymum flokkanna við rannsóknavinnu, greiningum á skoðanakönnunum og ýmsum rannsóknum varðandi fylgi flokkana.  Við erum því mjög glöð fyrir hönd viðskiptavina okkar hversu vel báðum flokkum gekk og óskum þeim velfarnaðar í komandi samstarfi.

Breytingar á lífstílshópunum

Lífstílshóparnir er markhópagreining sem við höfum notað á síðustu árum, sumir mikið en aðrir minna. Allir sem vinna að markaðsmálum ættu þó að þekkja þessa hópa. Til grundvallar skiptingu í þessa hópa eru 155 spurningar í Neyslukönnun Capacent sem framkvæmd hefur verið síðastliðin 2 ár í netkönnun. Allt til ársins 2007 var könnunin gerð í dagbókarformi á pappír. Sú aðferð var ekki farin að skila nægjanlegum árangri, úrtakið var frekar lítið og svarhlutfall lélegt. Því var brugðið á það ráð að gera þetta að netkönnun og nú erum við að vinna með rúmlega 3.300 svör.

Sjónvarp um páskana

Fjölbreytt dagskrá er í boði í sjónvarpinu um páskana, íslenskt efni, heimildamyndir, tónlist og kvikmyndir. Einnig verður nóg um að vera í sportinu, meðal annars golf og fótbolti. Rúv sýnir heimildarmynd um Hljóma, Hljómar í Liverpool á laugardeginum.  Einnig verður sýnd heimildarmynd um Jóhann Eyfells á skírdag, Einungis fæðing.  Á öðrum í páskum verður mynd Friðriks Þórs, Djöflaeyjan, á dagskrá og á páskadag verður sýnd upptaka frá tónleikum Denyce Graves sem voru á Listahátið 2008.  Auk þessar verða margar kvikmyndir sýndar, eins og Babel, The Bourne Ultimatum og Mary Poppins.

Íslenskt efni í sjónvarpi- vika 8

Enn og aftur skoðuðum við sjónvarpsáhorf hjá aldurshópnum 18 – 35 ára og 25 – 45 ára, og þess a vikuna tókum við líka fyrir hópinn konur 20 – 50 ára. Íslenskt efni er áberandi núna og hefur innlendum þáttum fjölgað á topplistunum síðustu 3 vikurnar.  Ef við tökum listann frá því fyrir þremur vikum síðan þá voru fjórir íslenskir þættir á topp  10 listanum hjá 25- 45 ára og hjá 18 – 35 ára, en í síðustu viku þá voru átta íslenskir þættir á listanum hjá 25 – 45 ára og einnig hjá 18- 35 ára, ekki sömu þættirnir.  

Söngur og bílar í sjónvarpinu

Í síðustu viku var fyrsti þáttur Idol - Stjörnuleitar á Stöð 2 og úrslit í Söngvakeppni Sjónvarpsins.  Þegar skoðað er sjónvarpsáhorf meðal 18–35 ára og 25–45 ára kemur í ljós að tveir efstu dagskrárliðirnir á topp 10 listunum eru Söngvakeppni Sjónvarpsins og Spaugstofan líkt og í síðustu vikunni sem við settum hér inn, sem var vika 5.  Top Gear,  sem sýndur er á sunnudagskvöldum á Skjá 1, er vinsælasti þáttur þeirrar stöðvar í þessum hópum. Á sama tíma er þátturinn í þriðja sæti á top 10 lista þessa vikuna hjá báðum hópunum.  

Rafrænar ljósvakamælingar í eitt ár

Nú er ár liðið síðan fyrstu gögn komu úr rafrænum ljósvakamælingum (PPM mælingar) Capacent og við hófum að setja birtingaáætlanir upp í Infosys forritinu sem hýsir PPM gögnin. Það var bylting að fá nýjar tölur vikulega. Nú eru áætlaðar dekkunar- og tíðni tölur uppfærðar vikulega meðan plön eru enn í gangi og því  möguleiki að uppfæra birtingaplön ef þörf er. Nýir dagskrárliðir fá mælingu strax og eru því ekki óþekktar stærðir í gegnum heila seríu eins og gerðist stundum í dagbókamælingum. Þetta var ekki einungis bylting fyrir birtingastofur heldur einnig fyrir dagskrástjóra fjölmiðlanna sem geta nú aðlagað dagskrár út frá upplýsingum mælinganna. 

Samdráttur í Super Bowl

Um helgina mun eiga sér stað einn stærsti auglýsingaviðburður ársins í Bandaríkjunum, sjálf Super Bowl keppnin í amerískum fótbolta.  Keppnin dregur um 100 milljón manns að skjánum, eða um þriðjung þjóðarinnar og er enginn annar atburður sem kemst nálægt keppninni í áhorfi.  Auk þess hafa rannsóknir sýnt að margir horfa á leikinn gagngert til að sjá auglýsingarnar, sérstaklega konur.   Í ár má segja að efnahagsástandið í Bandaríkjunum sé að segja til sín en eftirspurn eftir auglýsingaplássi er mun minni en síðustu ár. 

Gagnvirkt veltiskilti

Fyrirtækið Sharpie sem framleiðir meðal annars merkipenna setti af stað áhugaverða herferð um daginn. Sett voru upp gagnvirk veltiskilti í nokkrum borgum þar sem fólk getur valið liti og skrifað skilaboð á skiltin, eða eins konar graffiti.  Þannig er fólki gert mögulegt að koma sínum skilaboðum á framfæri og skilja skilaboðin sín eftir.  Með þessu tengir Sharpie krotþörf á jákvæðan hátt við sína sterkustu vöru sem er merkipennar (permanent markers).  Skemmtileg hugmynd. 

Fréttablaðið fækkar útgáfudögum

Á síðustu vikum hefur mikið verið spáð og spekúlerað með fjölmiðla landsins og hefur ríkt nokkur óvissa um framtíð margra þeirra. Ekki hafa þó neinar stórkostlegar breytingar átt sér stað eftir að 24 stundir var tekið af dagblaðamarkaði og Skjár 1 ákvað að halda áfram útsendingum sínum.   Fréttablaðið boðaði þó smá breytingar í dag.

Hvað er í gangi 2009?

Út er komið “hvað er í gangi” dagatal Auglýsingamiðlunar fyrir árið 2009 og munu viðskiptavinir og samstarfsaðilar okkar fá það til sín innan skamms. Í þessu dagatali höfum við tekið saman helstu atburði hvers mánaðar fyrir sig, atburði sem auglýsendur notast oft við í markaðsefni sínu yfir árið. Atburðirnir eru allt frá því að vera þjóðlegir, skemmtilegir, árlegir, ómerkilegir, nýstárlegir og eða bara mjög augljósir.  Hins vegar allt atburðir sem að markaðsfólk ættu að vera með á hreinu til að fylgja tíðarandum hverju sinni.  Dagatalið í heild sinni má sjá hér.


Gogoyoko

Innan skamms opnar ný vefverslun með tónlist á netinu, Gogoyoko, og eru það íslenskir aðilar sem standa að versluninni.  Vefnum er ætlað að gerbreyta hvernig tónlist er seld á netinu og áhersla lögð á að notendur, kaupendur og seljendur geti byggt upp gott tengslanet á auðveldan og þægilegan hátt.  Þarna bætist við nýr og ferskur auglýsingamöguleiki fyrir auglýsendur um allan heim og þar með talin íslensk fyrirtæki.  Nýjungin felst ekki einungis í nýjum vef heldur ekki síst í þeim markaðsupplýsingum sem að auglýsendur fá við kaupin, upplýsingar um virkni auglýsinga  þeirra.  

Markaðsflopp hjá Dr Pepper

Eins og við skrifuðum um hér áður þá gaf aðstoðar markaðsstjóri Dr Pepper bandaríkjamönnum loforð í mars síðastliðnum að ef hljómsveitin Guns ´N Roses myndi gefa út plötuna ‘Chinese Democrazy’ árið 2008 myndi fyrirtækið gefa öllum bandaríkjamönnum eina dós af drykknum Dr Pepper.  Þegar þeir tilkynntu þetta óraði þeim líklega ekki fyrir að þeir myndu þurfa að efna loforðið því platan er búin að vera nokkur ár á leiðinni á markað.   Í síðustu viku kom platan hins vegar út og var komið að því að standa við loforðið. 

Vodafone og Magnús Geir verðlaunuð af ÍMARK

Við óskum viðskiptavinum okkar, Vodafone og Magnúsi Geir Þórðarsyni leikhússtjóra Borgarleikhússins, innilega til hamingju með þá viðurkenningu sem þeim hlotnaðist úr hendi ÍMARK síðastliðinn fimmtudag. Vodafone var eitt af þremur fyrirtækjum sem tilnefnt var sem markaðsfyrirtæki ársins 2008 og Magnús Geir var valinn markaðsmaður ársins fyrir starf sitt hjá Borgarleikhúsinu og Leikfélagi Akureyrar á árinu.

Dr. Pepper veðjar á Guns ‘N Roses’

Óhætt er að segja að fyrirtæki beiti mismunandi aðferðum við að koma vörum sínum á framfæri. Í mars á þessu ári tilkynnti Tony Jacobs, aðstoðarmarkaðsstjóri Dr Pepper gosdrykkjanna í Bandaríkjunum, að allir Bandaríkjamenn fengju eina dós af Dr Pepper ef hljómsveitinni Guns ‘N Roses’ tækist að gefa út plötuna ‘Chinese Democrazy’ á þessu ári. Skemmst er frá því að segja að nú er búið að ákveða útgáfudag plötunnar, en hún mun koma út 23. nóvember eftir að hafa verið 17 ár í vinnslu.

Fjölmiðlanotkun í síðustu viku

Fjölmiðlanotkun í síðustu viku var um margt mjög óvenjuleg og er það að sjálfsögðu vegna óvenjulegra aðsæðna í þjóðfélaginu um þessar mundir. Fólk sótti í stöðugar fréttir og því jukust heimsóknir á fréttasíður á netinu, áhorf á sjónvarp jókst bæði dags og kvölds auk þess sem aukning var í útvarpshlustun.

Markvisst markaðsstarf í erfiðu árferði

Á þessum síðustu og kannski verstu tímum er oft talað um að kreppan umtalaða skelli harkalega á auglýsingabransanum. Sumir telja sjálfsagt að markaðsstarf og auglýsingagerð sé það fyrsta sem skera þurfi niður þegar halla fer undan fæti. Eins og margur markaðsfræðingur þekkir getur slíkt verið hið mesta óráð og röng ákvörðun í alla staði. Það er nauðsynlegt flestri starfsemi að setja fé í að upplýsa mögulega viðskiptavini um framboð vöru þeirra og þjónustu, með það að markmiði að komast yfir hjallann með auknum viðskiptum og halda þannig áfram.

Fjörugt sjónvarpsáhorf um síðustu helgi

Það má með sanni segja að haustið sé komið hjá sjónvarpsstöðvum landsins og áhorfendum þess, því á síðustu dögum hafa nýjir og þó nokkrir íslenskir þættir verið settir á dagskrá og landinn virðist hafa aukið áhorf sitt sem aldrei fyrr.  Á meðan að vikir dagar yfir sumartímann hafa oft verið betri sjónvarpsdagar heldur en helgarnar þegar áhorf er skoðað þá má segja að því sé öfugt farið þegar veturinn tekur við. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.

Skaparinn og Auglýsingamiðlun hefja samstarf

Auglýsingastofan Skaparinn og Auglýsingamiðlun hófu nýverið samstarf. Hafa báðir aðilar miklar og góðar væntingar til þess. Hjá báðum þessum stofum starfa aðilar sem hafa umtalsverða reynslu úr markaðs- og auglýsingastarfi. Eigendur Skaparans eru Kolbeinn Marteinsson og Loftur Leifsson, margreyndir í bransanum, eins og gjarnan er sagt. Hjá Auglýsingamiðlun ríkir tilhlökkun að starfa bæði með nýja samstarfsaðilinum og ekki síst með fjölmörgum viðskiptavinum þeirra.

Um vísitölur Auglýsingamarkaðar

Við hjá AM fylgjumst gjarnan með vísitölu auglýsingamarkaðar frá einum mánuði til annars. Þarna er fyrst og fremst verið að fylgjast með auglýsingamagni, en ekki fjárhagslegu umfangi. Ástæða þess að við fylgjumst með þessu er m.a. sú að kanna í hvaða átt markaðurinn stefnir, ekki síst í því skyni að upplýsa viðskiptavini okkur um breytingar sem eru að verða á þessu sviði. Nánari greiningar á einstökum auglýsingaflokkum eru fáanlegar hjá okkur fyrir viðskiptavini okkar.

Hugleiðingar um auglýsingar á Facebook

Íslenskir notendur Facebook hafa eflaust tekið eftir að íslenskar auglýsingar eru farnar að birtast inni á síðunum þegar notendur skrá sig inn og vafra um samfélagið. Markaðsfólk hlýtur því að spyrja sig hvort þeir eigi að taka þátt í þessum, hvort það gæti verið áhrifaríkara að auglýsa þarna en á öðrum vefsíðum eða jafnvel í öðrum tegunda miðla sem hugsanlega hafa minni dekkun.Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira um þessar vangaveltur.

Við erum Fyrirmyndarfyrirtæki

Niðurstöður Fyrirtækjakönnunar VR voru kynntar síðastliðinn föstudag. Auglýsingamiðlun var í 16.sæti á lista minni fyrirtækja en fyrirtæki sem hafa 49 eða færri starfsmenn flokkast sem minni fyrirtæki. Á lista voru 201 fyriræki. Könnunin byggir á sjö þáttum sem mynda heildareinkunn fyrirtækjanna:
  • Trúverðugleiki stjórnenda
  • Launakjör
  • Vinnuskilyrði
  • Sveigjanleiki í vinnu
  • Sjálfstæði í starfi
  • Stolt og ímynd fyrirtækis
  • Starfsandi
Við getum því með ánægju sagt að við séum Fyrirmyndarfyrirtæki.  Við leggjum metnað í að skapa okkur gott og vinalegt starfsumhvefi og höfum nú fengið staðfestingu á því með gæðastimpli VR og Capacent.

 

24 Stundir með yfir 50% lestur í fyrsta sinn

Samkvæmt nýrri fjölmiðlakönnun Capacent Gallup, sem framkvæmd var á tímabilinu 1. jan til 30. apríl,  mælast 24 Stundir með 50,4% meðallestur á tölublað og hækka sig um 4,6% frá síðustu könnun. Þetta er í fyrsta sinn sem 24 Stundir mælast með meira en helmings meðallestur og er greinilegt að blaðið er í mikilli sókn um þessar mundir.

SONY Foam City

SONY fyrirtækið hefur hafið herferð sem má segja að hafi strax vakið mikla athygli erlendis.  Eftir að hafa birt svokallaða"teasers"- stríðnisauglýsingar í nokkrar vikur og komið nokkrum myndböndum inn á YouTube er aðal auglýsingin komin í loftið. Hér er á ferðinni Froðuborgin, e. Foam City, og er auglýsingin algjört augnakonfekt.

Lipstick Jungle "Shopisodes"

Skjár einn hefur sýningar á nýjum sjónvarpsþætti miðvikudaginn 2.apríl sem nefnist Lipstick Jungle og hefur vakið talsverða athygli í Bandaríkjunum síðan þeir voru teknir til sýninga.  Þátturinn er byggður á metsölubók eftir Candace Bushnell höfund Sex and the City og fjallar um valdamiklar vinkonur í New York.  Áhorfandinn getur þó ekki aðeins horft á þættina heldur einnig keypt sér föt og fylgihluti sem aðal leikkonurnar klæðast í þáttunum. 

Nýr starfsmaður

Fyrir fáeinum dögum hóf Gísli Jóhann Eysteinsson störf hjá okkur á Auglýsingamiðlun. Þetta er enn einn liðurinn í því að bæta þjónustuna okkar, en hann mun fyrst og fremst fást við rannsóknir og greiningar úr heimi markaðs- og auglýsingamála. Ásmundur er sem fyrr rannsóknastjóri okkar og mun áfram sinna því hlutverki.


Mindshare gerir það gott á Effie verðlaununum

Effie alþjóðlegu auglýsingaverðlaunin voru veitt á dögunum og að þessu sinni var hátíðin haldin í Singapore. Mindshare gerði þar góða hluti með viðskiptavinum sínum og hreppti gull-, silfur- og bronsverðlaun fyrir media strategy. Í fréttatilkynningu frá aðstaðendum verðlaunanna segir : "The Effies recognize ideas that work – the great ideas that achieve real results and the strategy that goes into creating them. Global Effie winning campaigns require a single brand idea running across at least four countries in two or more
regions worldwide within the last three years."

Birta hér?

Hollenskur strákur hefur ákveðið að vera í rúminu og halda úti heimasíðu um það.  EKki nóg með það heldur selur hann auglýsingar á síðuna sína í þeim tilgangi að verða ríkur.  Allt er nú til!

Green Porno með Isabellu Rossellini

Green PornoÍtalska leikonan Isabella Rossellini er að hefja ansi áhugavert verkefni þessa dagana.  Hún hefur leikstýrt seríu af 8 stuttmyndum um fjölgun skordýra sem eru ætlaðar til skoðunar og sýningar í farsímum og í tölvum.  Þessar einna mínútu stuttmyndir eru kallaðar Green Porno og mun helsta ástæða fyrir nafngiftinni vera sú að nafnið eitt mun ná inn talsverðrum innlitum og athygli í gegnum leitarvélar internetsins. 

ÍMARK HÁTÍÐIN - LÚÐRAHÁTÍÐ 2008

Á föstudaginn verður hin árlega ÍMARK ráðstefnana og Lúðrahátíð haldin.  Yfirskrift ráðstefnunnar þetta árið er 360°í sjö erindum og er henni ætlað að kynna nýjungar í markaðsmálum og benda á tækifæri sem nýtast í daglegu starfi.   Um kvöldið verður svo hátíðarkvöldverður og lúðraverðlaunaafhending fyrir bestu auglýsingarnar 2007.  Það verður gaman að sjá hverjir af okkar samstarfsaðilum og viðskiptavinum hreppa hnossið þetta árið.  Sjáumst á ÍMARK!

METRO

Góð hugmynd!


PPM -rýnt í nýjar ljósvakamælingar

Síðustu daga höfum við hér á Auglýsingamiðlun verið að skoða og kanna nýjar áhorfstölur á ljósvakamiðlum landsins sem Capacent Gallup hefur nýlega sett af stað.  Þetta er í raun bylting fyrir okkur birtingafólk þar sem aðferðafræði PPM mælinganna (Portable people meter) er mun áreiðanlegri en áður auk þess sem tölurnar eru nýjar og ferskar eða frá því í síðustu viku!

 

Má bjóða þér Fairtrade kaffi og orkusparandi peru?

Eru neytendur farnir að stjórna markaðsaðgerðum meira en fyrirtæki gera sér grein fyrir? Búa fyrirtækin til þörfina fyrir vörum sínum og þjónustu eða koma kröfur í auknu mæli frá neytendum sem ýtir á þróun þjónustu og vöru?